Sweet Salone Saltstaukar

5.900 kr
Product Name: Salt Jar
Size: O/S
Color: Black

Skál fyrir gróft salt með stóru gati svo hægt sé að strá salt flögunum. Líka hægt að nota sem kertastjaka með sprittkerti. 

Íslensk Hönnun framleidd í Sierra Leone.

Að baki hverri vöru er langt ferli. Að þróa hráan leir í fullunna vöru tekur venjulega um það bil þrjár til fimm vikur, allt eftir árstíð. Hráleirinn er keyptur í þorpi þar sem jarðvegur er mjög leirborinn og fluttur í leirmunamiðstöðina þar sem hann er látinn þorna. Þá er hann mulinn í stórumorteli og sigtaður svo eftir verður fínt duftkennt efni. Næsta skref er að þvo leirinn. Vatni er blandað saman við duftið og látið renna hægt af og aftur er blöndunni þrýst í gegnum sigti. Leirinn er síðan settur í plastpoka og á plasthellu þannig að vatnið sem eftir er rennur út. Að lokum er leirinn hnoðaður og er þá tilbúinn til notkunar.

Varan er mótuð á sparkhjólinu og þegar réttri lögun hefur verið náð er hún látin þorna. Þurrkun fullunnar vöru getur tekið allt að þrjár vikur eftir veðri, en yfir rigningartímabilið (maí-okt) er rakastigið 85-95% flesta daga og þurrkunin getur dregist í langan tíma. Þegar varan er orðin nógu þurr er hún brennd í ofni, svokölluð bisquebrennsla. Í viðarofninum tekur brennslan að minnsta kosti 12 klst. Að lokinni brennslu er varan síðan glerjuð og brennd aftur við mikinn hita. Allt brennslu- og glerjunarferlið getur tekið uppundir eina viku og þá loks erum við með hlut tilbúinn í sölu.

Related products

View all